jæja er
búin að taka lykilorðið af síðunni. Setti það á því ég nennti
ekki að blogga en ég er komin aftur!
Anna mín átti
18 ára afmæli 23.mars. Til hamingju elskan mín;* gellan skellti sér
svo bara til Portúgals með fótboltanum og er þar núna og ég öfunda
hana ekkert smá

búin að vera
mjög róleg helgi hjá mér! hahahah á föstudaginn vorum ég og Íris
með fyrirlestur um Malaví sem er land í afríku og það er mjög há
dánartíðni þar eða 1 af hverjum 5 konum deyja við barnshafir
og Íris snillingur sagði í fyrirlestrinum: ...þannig að ef þú
eignast barn þá deyrðu!! heheh mismælti sig smá
mamma náði að
plata mig með sér til Grenivíkur á eitthvað leikrit hjá litla
frænda mínum. Hélt að þetta yrði í svona hálftíma en nei þá var
allur Grenivíkurskóli í leikritinu og það var í 2 klukkutíma! Fór
svo til Ak og fór smá rúnt með Erni og var svo komin heim, uppí rúm
kl: hálf 12.
í gær fórum
ég, Jóna og Íris í bíó á mynd sem heitir "Wild Hogs" váá hún var
geðveikt fyndin
mjög góð mynd! en auðvitað þufti einhver kona
að sitja fyrir aftan okkur sem hló ALLANN tímann, líka þegar það
var verið að berja mennina í myndinni! Fórum svo bara á
rúntinn....ætluðum að fara á Sálina en beiluðum á því! var komin
heim um 1 leitið og er semsagt vöknuð.

John
Travolta
aldurinn farin að segja til sín?
það eru 10
dagar í afmælið mitt!!! vá get ekki beðið....Á móti Sól er í
Sjallanum á afmælinu mínu, ætli maður verði ekki að fara á
það!

ætla ekki að
hafa þetta lengra! allir að kvitta!
Vala Margrét
Jóhannsdóttir

bíð spennt
eftir að Eyrún komi heim frá RVK eftir Gus Gus ferð sem ég er farin
að sjá eftir að hafa ekki farið með í